EN

Skólatónleikar í Borgarnesi og Stykkishólmi

Fyrir elstu börn leikskóla og yngstu börn grunnskóla

Skólatónleikar í íþróttahúsinu Borgarnesi 7. mars og íþróttahúsinu Stykkishólmi 8. mars.

Fyrir bókanir á skólatónleikana í Stykkishólmi má hafa samband við Hjördísi Ástráðsdóttur fræðslustjóra, hjordis.astradsdottir@sinfonia.is. Uppbókað er á tónleikana í Borgarnesi. 

Fimmtudagur - 7. mars 2024 - kl. 11:00
Föstudagur - 8. mars 2024 - kl. 11:00

Sagan um Maxímús Músíkús er eitt ástsælasta tónlistarævintýri þjóðarinnar og hefur raunar farið um allan heim við mikla hrifningu. Músin ástsæla villist inn á æfingu hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, þar sem hún kynnist tónlistinni af eigin raun og leiðir hlustendur með sér inn í heillandi hljóðheim hljómsveitarinnar. Tónlistin sem hljómar á tónleikunum er úr ýmsum áttum og má þar nefna Bolero eftir Maurice Ravel og Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns að ógleymdu laginu hans Maxa. Ævintýrið um Maxa hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun og verið þýtt á fjölda tungumála. Höfundur tónlistarævintýranna um Maxímús Músíkús er Hallfríður Ólafsdóttir en hún var leiðandi flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands í rúma tvo áratugi og Þórarinn Már Baldursson víóluleikari myndskreytir sögurnar. 

Efnisskrá
Hallfríður Ólafsdóttir: Maxímús Músíkús heimsækir hjómsveitina
Atli Heimir Sveinsson: Kvæðið um fuglana

Flytjendur:
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Ross Jamie Collins hljómsveitarstjóri
Valur Freyr Einarsson sögumaður

Dagskrá skólatónleika

Fimmtudagur 07.03.24
11:00 – Tónleikar í íþróttahúsinu Borgarnesi

Föstudagur 08.03.24
11:00 – Tónleikar íþróttahúsinu Stykkishólmi