Norræn ráðstefna sinfóníuhljómsveita
í Hörpu 14.-16. september
Dagana 14.-16. september verður haldin í Hörpu árleg ráðstefna framkvæmdastjóra og helstu stjórnenda sinfóníuhljómsveita á Norðurlöndum. Sinfóníuhljómsveit íslands er gestgjafi að þessu sinni en ráðstefnan er nú haldin í fertugasta skipti. Ráðstefnugestir eru um sjötíu talsins og koma frá öllum Norðurlöndum.
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er „Looking forward“ og er þá vísað til þess að við getum horft með tilhlökkun til framtíðar. Á meðal fyrirlesara eru forstjóri Fílharmóníunnar í Los Angeles, Deborah Borda og Chad Smith, listrænn stjórnandi sömu hljómsveitar.
Þá fara fram pallborðsumræður þar sem kastljósinu verður beint að framþróun tónleikaformsins og samvinnu hljómsveita og hljóðfæraleikara í að móta sameiginlega framtíð.
Ráðstefnugestir munu sækja tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Osmo Vänskä í Eldborg á fimmtudagskvöld.
- Eldri frétt
- Næsta frétt