Tónleikakynning 18. nóvember
Vinafélag SÍ stendur fyrir tónleikakynningu í safnaðarheimili Neskirkju fimmtudaginn 18. nóvember kl. 18. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri SÍ mun fjalla um píanókonsert í d-moll eftir Mozart og Sinfóníu nr. 1 eftir Beethoven í tali og tónum, og leitast við að útskýra hvernig snilld þessara tveggja meistara birtist í verkum þeirra.
Kynningarnar njóta mikilla vinsælda meðal tónleikagesta og margir hafa á orði að þær séu ómissandi hluti af tónleikaupplifuninni. Hægt er að kaupa súpu og kaffi á undan kynningunni, sem lýkur um kl. 19. Allir eru velkomnir.
- Eldri frétt
- Næsta frétt