| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 15. maí 2026 » 19:00 » Föstudagur | Íþróttahöllin á Jaðarsbökkum | Aðgangur ókeypis | ||
| Aðgangur ókeypis | ||||
-
Hljómsveitarstjóri
Hjörtur Páll Eggertsson
-
Einsöngvarar
Benedikt Kristjánsson, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Björg Þórhallsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir og Kristín Sveinsdóttir.
-
Kórar
Freyjukórinn, Kvennasveitin Skaði, Karlakórinn Söngbræður, Karlakórinn Heiðbjört, Karlakórinn Svanir, Kvennakórinn Ymur, Gleðigjafar, Hljómur, Kirkjukór Borgarness, Kór Akraneskirkju, Stemma og Kór Saurbæjarprestakalls.
Sinfóníuhljómsveit Íslands er það mikið kappsmál að allir landsmenn fái notið tónleika hennar. Stefnumót sveitarinnar við áheyrendur víða um landið eru ævinlega skemmtileg og gefandi. Vorið 2025 heimsótti hljómsveitin nokkra þéttbýlisstaði á Suðurlandi en nú er ferðinni heitið upp á Akranes. Þar njótum við
enn einu sinni afraksturs blómlegs tónlistarstarfs um allt land og bjóðum upp á sannkallaða söngveislu með kórum og einsöngvurum af Vesturlandi.
Um tónsprotann heldur Hjörtur Páll Eggertsson en einsöngvarar eru þau Benedikt Kristjánsson, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Björg Þórhallsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir og Kristín Sveinsdóttir. Kórarnir sem koma fram með hljómsveitinni eru Freyjukórinn, Kvennasveitin Skaði, Karlakórinn Söngbræður, Karlakórinn Heiðbjört, Karlakórinn Svanir, Kvennakórinn Ymur, Gleðigjafar, Hljómur, Kirkjukór Borgarness og Kór Akraneskirkju.
Aðgangur er ókeypis og eru öll velkomin.
*Tónleikarnir eru um 80 mínutur án hlés.
